þriðjudagur, janúar 27, 2009
sunnudagur, janúar 25, 2009

sunnudagur, janúar 11, 2009
"Þú leggur þig allan fram og er staðráðinn í því að verða bestur í því sem þú tekur sér fyrir hendur. Láttu það bara eiga sig."
Þetta er akkúrat það sem maður þarf til að koma sér í gírinn............. sem betur fer tek ég svona stjörnuspár ekki alvarlega. En finnst oft mjög fyndið að lesa þær. Sérstaklega þegar textinn er jafn uppörvandi og þessi :)
fimmtudagur, janúar 08, 2009
Ég er búin að skemmta mér konunglega yfir viðbrögðum fólks þegar það sér mig gleraugnalausa. Flestir horfa á mig og eru ekki alveg viss hvað það er sem er öðruvísi en sjá að það er eitthvað. Kallarnir/strákarnir (best að móðga engan) koma með ýmis skemmtileg komment, einn horfði á mig og spurði svo: "Notar þú ekki gleraugu?" annar sagði: "Það vantar eitthvað á þig" en flestum finnst þetta skrítið svona fyrst þegar þeir sjá mig. Sjálfri finnst mér þetta ennþá svolítið skrítið að vera gleraugnalaus og ég hef komist að því að ég er með ýmsa gleraugnakæki. Er t.d. alltaf að ýta gleraugunum upp á nefið á mér, laga þau til þegar mér finnst þau vera skökk, þegar ég fer út í rigningu bíð ég eftir að sjá dropana lenda á gleraugunum og þegar ég kem inn úr kulda bíð ég eftir að sjá móðuna leggjast á gleraugun og byrgja mér sýn eins og hérna

sunnudagur, janúar 04, 2009

Eftir að heim var komið tók við smá törn í vinnunni sem lauk samt eiginlega ekki fyrr en í lok október. Þannig að frá júní til lok okt. sást ég aðeins í mýflugu mynd og gerði ekki annað en að afboða mig annað hvort í gönguferðir, ferðalög, partý, grillveislur nú eða aðra mannfögnuði, ótrúlegt að ég eigi ennþá vini;) Komst samt í hina árlegu TMC útilegu í júlí með herkjum og naut þess að sitja í sólinni og slappa af. Slapp svo í smá sumarfrí um miðjan september enda búið að plana þá ferð mjög lengi. Fór til New York með verkfærðivinahópnum og eins og verkfræðingum sæmir þá var þessi ferð mjög nákvæmlega tímasett.......... þ.e. daginn sem við komum heim þá hrundi hagkerfið á Íslandi og allir hættu að fara til útlanda....... en þessi ferð var geggjuð í alla staði og er best að sýna sem minnst frá þeirri ferð, sumt á ekki heima á internetinu ;) læt samt eina mynd fylgja með frá Times square, ég er þarna einhvers staðar á myndinni

Eftir NY var haldið áfram að vinna og sem betur fer var mikið að gera þannig að hægt var að vinnu upp í skuldirnar sem söfnuðust á kortið í stóra eplinu. Verð samt að segja að NY er ein af mínum uppáhaldsborgum, finnst bara svo æðislegt að vera þarna. Síðan voru ferðafélagarnir ekki til að skemma fyrir, þið voruð æði..... þið vitið hver þið eruð...... ;) En jæja áfram með smjörið, kreppan skall á (ekki að það hafi farið fram hjá neinum) en ein utanlandsferð var samt ennþá á dagskrá og sem betur fer var ekki hætt við hana. Farið var í helgarferð til Barcelona í lok október þar sem við náðum í skottið á sumrinu áður en það kvaddi. Lentum í 29°C og sól sem var æði og að sjálfsögðu héldu Íslendingarnir niður á strönd
Í nóvember var ekki eins mikið að gera í vinnunni og loksins gat ég farið að hitta fjölskyldu og vini aftur, enda var mánuðurinn nýttur til hins ýtrasta í hinum ýmsu samkvæmum. Þegar jólamánuðurinn tók svo við fór ég að huga að jólagjöf handa sjálfri mér, alveg nauðsynlegt að kaupa svoleiðis;) Ákvað að hafa hana í stærra lagi þetta árið og eins og ég var búin að segja hérna á blogginu þá ákvað ég að fara í laseraðgerð og losa mig við gleraugun fyrir fullt og allt. Var reyndar smá efins með þessa ákvörðun mína þar sem gleraugun hafa setið á nefinu á mér síðustu 11 árin og orðin partur af mér. Held reyndar að ég hafi stundum verið að fela mig bak við þau, kannski kominn tími til að sýna sitt rétta andlit og hætt að fela sig. Þannig að núna tek ég á mót nýju ári með engin gleraugu og batnandi sjón. Set hérna inn mynd af mér með gleraugu og svo án þeirra og ég segi bara gleðilegt nýtt ár og hlakka til að hitta ykkur öll á nýju ári sem verður alveg ótrúlega skemmtilegt ár, en þó ekki jafn mikið af utanlandsferðum og á því síðasta en stefnan er tekin á ferðalög innalands núna enda kominn tími til :)

Jæja þar með lýkur stuttri yfirferð ársins 2008 sem var mjög viðburðaríkt og skemmtilegt ár, þaut reyndar hjá allt of hratt ..... hummm skil varla hvernig það gat gerst;) Vona að 2009 verði jafn gott ár, ef ekki bara betra og það drífi sig ekki alveg jafn mikið. Úff púff best að hætta áður en maður fer að verða eitthvað væminn og segi bara rock on...........